Umhverfisstefna Hótels Núps
Núpur í Dýrafirði er fornt höfuðból og var höfðingjasetur í aldaraðir. Núpur er kirkjustaður og þar tók til starfa unglingaskóli árið 1907 að frumkvæði sr. Sigtryggs Guðlaugssonar. Á Núpi er einnig elsti skrúðgarður landsins sem stofnaður var árið 1909 af sr. Sigtryggi. Sú stefna og framkvæmd hennar í daglegum rekstri hótelsins verður eitt mikilvægasta gæðatákn hótelsins í ferðamálum. Hótelið, sem aðili að Ferðaþjónustu bænda, mun hafa umhverfis- og sjálfbærnisstefnu þeirra til hliðsjónar við framkvæmd umhverfisstefnu hótelsins sem er í aðalatriðum þessi:
• Vinna markvisst að því að halda nánasta umhverfi aðlaðandi og hreinu.
• Stuðla að verndun náttúru – og menningarminja.
• Draga úr mengun með minni verðmætasóun, t.d. með endurvinnslu, endurnýtingu, orkusparnaði, nota umhverfisvæn efni og tryggja að fráveitumál spilli ekki umhverfi.
• Velja frekar vörur og þjónustu sem koma úr heimabyggð og sem lágmarka neikvæð umhverfisáhrif, þar sem því verður viðkomið.
• Halda grænt bókhald og nota það í leiðinni sem gæðastjórnunarkerfi.
• Hafa í huga fólk úr heimabyggð við ráðningu starfsfólks.
• Leita eftir frekari fræðslu um umhverfismál og koma þeim upplýsingum áfram til starfsfólks og gesta.
• Hvetja birgja og viðskiptavini hótelsins til að taka þátt í að vernda umhverfið með okkur
• Uppfylla ákvæði laga og reglugerða um umhverfismál.
• Vinna stöðugt að úrbótum í rekstri og þjónustu til að draga úr skaðlegum umhverfisáhrifum og stefna að því að hótelið verði umhverfisvottað.