Veitingar sumarið 2012
Morgunverður 1.600 kr.
Hádegi:
Veitingasalurinn er lokaður í hádeginu en hægt er að versla í Kaupfélaginu okkar sem er staðsett í andyri hótelsins nestispakka, samlokur, harðfisk, gosdrykki, safa, kók og prins o.s.frv. Einnig er aðgangur að eldhúsum og grilli.
Kvöldverður:
Hótel Núpur leggur áherslu á staðbundið hráefni og keppti Guðmundur H. Helgason matreiðslumeistari hótelsins þann 10 maí 2009 fyrir hönd Vestfjarða í matreiðslukeppninni Íslenskt eldhús -2009 með vestfirskt hráefni. Einnig er hótelið meðlimur í Veisla að Vestan sem eru samtök veitingastaða og framleiðenda á Vestfjörðum sem leggja áherslu á eða framleiða vestfirskt hráefni.
Kvöldverður er framreiddur milli kl: 19-21 alla daga vikunnar. Ávallt verður í boði súpa eða forréttur, aðalréttur og eftirréttur ásamt kaffi eða te fyrir. þá er í boði léttur barnamatseðill.
12 ára og eldri: fullt verð
6-11 ára: 70% af fullu verði










